Old Boys UMFN
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Þínir flokkar
04.05.2011 23:46:58 / oldboysumfn

Æfing 5. maí í höllinni!!

Sælir,

Það styttist í fyrsta leik Íslandsmótsins sem er 24.maí n.k. Við spilum undir sameiginlegum merkjum Keflavíkur/Njarðvíkur í sumar.

Við ætlum að æfa á morgun fimmtudaginn 5. maí í Reykjaneshöllinni og hefst æfing kl 19 stundvíslega.

Stefnan er að spila alla heimaleiki okkar í Reykjaneshöllinni. Enn á eftir að ganga frá því hvernig æfingatímum verður háttað í sumar.

Vil ég biðja alla um að melda sig inn hérna fyrir fyrstu æfinguna sem er fimmtudaginn 5.maí eins og margoft er búið að koma fram.... :)

Kv Fowler


» 36 hafa sagt sína skoðun

10.11.2010 15:49:39 / oldboysumfn

Wurth mótið / Æfingar!!

Sælir piltar!!

Mótið er á laugardaginn!! Láta vita ef að þið getið mætt! Þarf að gefa svar í kvöld!! Sjá færslu fyrir neðan um mótið.

Æfingar fyrir Old boys munu hefjast í kvöld í íþróttahúsinu á Sunnubraut kl 21!! Við munum nota meldingarkerfið. Sendi sms á ykkur og þið meldið ykkur hér inn með mætingu. Þetta er ekki svo erfitt þó að þið hafið margir hverjir verið slappir við þetta í sumar. Aganefndin á eftir að funda um þetta og ganga frá sektarmálum!!

Muna að láta vita hér fyrir kl 19 í kvöld hvort að þið mætið í mótið! Þetta verður síðasta tækifærið á að ná í medalíu þetta seasonið. Það er þrýstingur frá bæjarbúum eftir að Njarðvík féll í 2.deild í sumar!!


» 30 hafa sagt sína skoðun

28.09.2010 12:53:38 / oldboysumfn

Wurth mótið!!!

 

WWüürrtthh IIcceellaanndd

- football&fun

 
Sælir sveinar!!

Þá er komið að mótinu sem ég var búinn að tala um við ykkur. Kynnið ykkur þetta hérna fyrir neðan. Ég ætla að reyna að fá sponsera til að koma til móts við okkur með keppnisgjaldi en eins og þið sjáið þá er þetta veglegt mót með skemmtilegri dagsskrá um kvöldið svo þetta gæti verið flottur lokahnykkur á annars afleitu sumari :haha:

Vinsamlegast meldið ykkur inn með mætingu. Þetta þarf að vera staðfest mæting!

Helgina 22. til 24. október verður alþjóðlegt knatt-
spyrnumót, Wüürth Iceland – football&fun haldið í fjórða
skiptið í Egilshöll á vegum Wüürth á Íslandi, Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur og eldri flokks Fylkis. Á mótinu er keppt í fjórum
flokkum; flokki karla 30 ára og eldri, karla 40 ára og eldri og
karla 50 ára og eldri. Síðan er einn kvennaflokkur, fyrir
konur 28 ára og eldri. Leikmenn sem hafa tekið þátt í
deildakeppni í þremur efstu deildum karla og efstu deild
kvenna á árinu eru ekki gjaldgengir í mótið.

Leikið er á ¼ knattspyrnuvelli og eru 6 leikmenn inni á vellinum
hverju sinni; markvörður og 5 útileikmenn, en í hverju liði geta verið
allt að 12 leikmenn. Hver leikur er 15 mínútur. Dómgæsla verður í
höndum reyndra knattspyrnudómara. Leikið verður með þeim hætti
að hver flokkur klárar sína leiki á tiltölulega stuttum tíma. Á milli leikja
geta leikmenn hvílt lúin bein í sérstökum sal þar sem boðið verður
upp á einhvers konar afþreyingu og veitingar á góðu verði.

Von er á nokkrum erlendum knattspyrnuliðum til landsins. Væntanleg eru
tvö karlalið frá Bandaríkjunum og tvö frá Danmörku og eitt kvennalið frá
Bandaríkjunum. Þá munu einnig taka þátt í mótinu íslensk knattspyrnulið víðs
vegar af landinu. Árið 2009 tóku 35 lið þátt í mótinu; 26 karlalið og 9
kvennalið og komust færri lið að en vildu. Hámarksfjöldi liða í ár verður 40 lið.

Dagskráin er annars á þá leið að föstudagskvöldið 22. október verður sérstök
móttaka fyrir keppnislið þar sem m.a. mótið verður kynnt og keppnisliðin
hittast. Laugardaginn 23. október fer mótið sjálft svo fram í Egilshöll frá kl.
9:00 til 16:00. Um kvöldið verður svo sérstakt lokahóf í Fylkishöll þar sem m.a.
verður boðið upp á glæsilegan þriggja rétta hátíðarkvöldverð, verðlauna-
afhendingu, skemmtiatriði, Magna Rock Star og dúndrandi diskótek með
plötusnúðum frá Boogie Nights til kl. 2 um nóttina.

Með þessu bréfi bjóðum við þínu félagi að taka þátt í þessu
alþjóðamóti. Þátttökugjald er það sama og í fyrra, eða aðeins 6
þúsund krónur á hvern leikmann, en innifalið í því er aðgangur í
móttöku á föstudagskvöld, þátttaka í knattspyrnumótinu og
aðgangur í lokahófið á laugardagskvöldinu.

Makar leikmanna og aðrir gestir eru hjartanlega velkomnir á
lokahófið og kostar aðgöngumiði fyrir þá 4 þúsund krónur.

Fjöldi liða er takmarkaður við 40 lið, eins og
fyrr segir og frestur til þess að skrá sig í mótið
rennur út þriðjudaginn 19. október n.k.

» 29 hafa sagt sína skoðun

13.09.2010 22:14:31 / oldboysumfn

Sigur gegn Reyni!! FH - NJARÐVÍK Melding!!

3 - 2 sigur gegn Reyni sandgerði í kvöld!! Lokatölur leiksins gefa ekki rétta mynd af gangi leiksins. Við ÓÐUM í færum en það vantaði klárlega Fowlerinn sem er kominn á sjúkralistann til að reka lokahnykkinn á sóknirnar en sigur er sigur og 3 stig í höfn.

Síðasti leikur tímabilsins er gegn FH í kaplakrika þriðjudaginn 21.sept kl 20.

Melding er hafin!! Ég sé til þegar nær dregur hvort að ég verði með en endilega kvitta hvort að menn verði með eða ekki!!!


» 29 hafa sagt sína skoðun

09.09.2010 01:12:02 / oldboysumfn

Góður sigur og næsti leikur gegn Reyni S!!

Leikurinn í kvöld fulldramatískur þar sem að menn lögðu sig í góðan kafla leiksins en 6 - 5 sigur hafðist gegn KÍBV. Fowler með 4 kvikindi, Högni 1 og Óli Örvar 1.

Næsti leikur er gegn Reyni S Mánudaginn 13.sept kl 20 í Reykjaneshöllinni.

Melding er hafin!!

Fowler er meldaður!


» 35 hafa sagt sína skoðun

02.09.2010 21:44:36 / oldboysumfn

Njarðvík - KÍBV

Sælir!!

Carl gaf síðasta leik svo við unnum hann 3 - 0 eins og lög gera ráð fyrir. Ég var með þrennu eins og lög gera ráð fyrir!

Næst er einnig heimaleikur og er hann gegn KÍBV og hefst hann kl 20 í Reykjaneshöllinni.

Melding er hafin og hér með er ég meldaður!!

Kv Fowler


» 35 hafa sagt sína skoðun

30.08.2010 23:55:30 / oldboysumfn

Leikur gegn Carl!!

Sælir piltar!

Sigur í kvöld 5 - 2 gegn Víkingi R og það er leikur 2.sept gegn Carl!!

Heimaleikur og allir að melda sig inn!


» 38 hafa sagt sína skoðun

26.08.2010 07:26:15 / oldboysumfn

Leikur á mánudaginn!!

Næsti leikur er gegn Víking R á Víkingsvelli á mánudaginn 30. ágúst og hefst leikurinn kl 20 sharp

Melding er hafin!!


» 33 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 20:36:48 / oldboysumfn

Leikur eftir gott frí!!

Sælir piltar!!

Þá er komið að seinni hluta Íslandsmótsins hjá okkur og hefjast leikar aftur á þriðjudaginn kemur kl 20. Ætla fá að færa leikinn í höllina sem og fá að spila restina af heimaleikjunum þar. Mótherjarnir eru Fylkir og eru þeir í neðsta sæti með einu stigi minna en við eða 0...

Meldið ykkur inn svo að Rabbi geti farið að velja í liðið!!


» 38 hafa sagt sína skoðun

11.07.2010 20:26:53 / oldboysumfn

HM búið og komið að æfingum!!

Sælir piltar,

Þá er HM veislan búin og kominn tími á að menn fari að hittast á æfingu.

Það er æfing á fimmtudaginn kemur kl 18 á Njarðvíkurvelli. Melda sig inn hvort að menn mæti eða ekki. Munið að búið er að koma á sektarsjóð fyrir þá sem melda sig ekki inn. Margvislegar ástæður geta verið fyrir því að menn komist ekki á æfingu en það er enginn afsökun að geta ekki meldað sig inn á síðunni. Tekur innan við mínútu.

Hvernig líst mönnum á að fá æfingaleik gegn Keflavík, taka þá sameiginlega æfingu þar sem að við myndum spila á styttri velli og hafa svona létt hraðmót?? Myndum þá gera það í Reykjaneshöllinni ef við fáum inni þar.. Kommentið á meldingu á æfingu og hvernig ykkur líst á að taka létt hraðmót.

Kv Fowler


» 46 hafa sagt sína skoðun

22.06.2010 15:48:58 / oldboysumfn

Niðurlæging í Fífunni og viðtal við Þjálfarann!

Njarðvíkingar voru niðurlægðir þegar að þeir mættu sterku liði Breiðabliks í Fífunni í gær. Lokatölur leiksins urðu 13 - 3 heimamönnum í vil. Bríkinn náði tali við Gísla Þór Þórarinsson framkvædastjóra, þjálfara og vara fyrirliða liðsins í dag eftir að slökkt hafði verið á símanum hans eftir leikinn í gær.

Blm; 13 - 3 þú getur ekki verið ánægður með þessi úrslit?
Fowler; Nei ég get ekki sagt það, veistu um eitthvað lið sem yrði ánægt með það?
Blm; Nei ég get ekki sagt það en grjótharðir stuðningsmenn Njarðvíkur spyrja hvað hafi eiginlega farið úrskeiðis?
Fowler; Við fáum á okkur 4 mörk í fyrri hálfleik, 3 þar sem að í öllum tilvikum varnarmaður elti ekki sóknarmanninn inn í teig og eftirleikurinn auðveldur en 4 markið var stórglæsilegt og það hefði ekkert lið getað komið í veg fyrir það. Það vantaði uppá spilið hjá okkur, vorum að reyna of erfiðar sendingar í staðinn fyrir auðvelt spil og svo vantaði uppá hreyfanleika án bolta og það veit ekki á gott gegn svona góðu liði eins og blikarnir eru.
Blm; Þið skoruðuð 3 mörk í leiknum og þú áttir þátt í þeim öllum en skoraðir samt ekki?
Fowler; Nei það er rétt, ég átti 2 stoðsendingar og svo truflaði ég markmanninn í 3ja markinu með því að blinda hann fyrir skot Einars Árna Jóhannssonar en ég get ekki alltaf skorað, ég geri mér grein fyrir kröfunum sem til mín eru bornar en liðsfélagarnir verða að stíga upp líka. Það er erfitt að vera ætlað að skora öll mörkin.
Blm; Hópurinn hefur verið frekar þunnur undanfarið, hvað er að gerast í ykkar herbúðum?
Fowler; Það er eitthvað um meiðsl, okkur vantaði 5 sterka leikmenn gegn Breiðabliki svo það það vann gegn okkur líka en það kemur maður í manns stað en það er samt pirrandi að geta ekki stillt upp sínu sterkasta liði miðað við kröfurnar sem eru gerðar til liðs sem eru Landsmótsmeistarar 2009.
Blm; Það ganga sögusagnir um að ykkur verði dæmdur ósigur 0 - 3 gegn Keflavík þar sem að þið notuðuð ólöglegan leikmann, hvað viltu segja um það?
Fowler; Þeir eru ágætir Keflvíkingarnir, Umræddur leikmaður hefur ekkert æft með liði frá því á síðasta sumri og var hættur öllu sparki og langaði til að sprikla með okkur en því miður þá var búið að loka fyrir félagsskiptin svo að það fór eins og það fór. Við munum hinsvegar ganga frá þeim félagsskiptum um leið og glugginn opnar. Þó svo að KSÍ dæmi sigurinn af okkur þá göngum við með höfuðið hátt eftir þennan leik. Við spiluðum gegn Íslandsmeisturum síðustu ára (Keflvíkingar töpuðu að vísu úrslitaleiknum í fyrra gegn ÍR en voru krýndir Íslandsmeistarar þar sem ÍR hafði gefið leik fyrr um sumarið og gátu því ekki orðið Íslandsmeistarar. Innsk blm) og unnum þá í fótbolta 7 á móti 7, þeir geta vælt endalaust undan Sigurði en við vorum ekki að nýta okkur leikmann sem hefur spilað með mfl á þessu ári eða hefur verið að æfa með öðru liði en okkur, það var ekki einbeittur vilji hjá okkur að svindla en Keflvíkingar geta ekki tekið tapi eins og menn og mega hirða þessi 3 stig mín vegna en sigurinn áttu þeir aldrei og munu aldrei eiga. Vonandi eru þeir stoltir og geta sofið rótt með illa lyktandi samvisku en við vitum hvernig leikurinn fór, 7 - 4, og ef við tökum mörkin hans Sigga þá standa leikar 5 - 4, þeir geta bara ekki tekið þessu tapi eins og menn en ég græt þessa leið þeirra ekkert. Vonandi gengur þeim bara vel í sumar en miðað við leik þeirra gegn okkur þá er ég ekki að sjá þá í topp 3 í haust.
Blm; Annað sem mig langar til að koma inn á er orðrómur um vaxandi óánægju með störf þín sem þjálfara á meðal leikmanna, talað er um frönsku HM byltinguna, hvað viltu segja um það?
Fowler; Það eru póstar þarna sem ég verð að taka á innan liðsins, ég byrjaði náttúrulega með því að deila efsta sætinu með Carl í b riðli í fyrra en við fórum ekki áfram útaf lakari markatölu sem var nú vandræðamál fyrir mótanefnd KSÍ þar sem Carl fékk að breyta úrslitum eftir því hvað hentaði þeim. Svo landaði ég Landsmótsmeistaratitlinum sama sumar þar sem ég setti meðal annars 3 mörk í úrslitaleiknum svo að vonbrigði þessa árs eru skiljanleg en það er enginn bylting í boði. Ef menn spila bara eins og fyrir þá er lagt og hætta að stæla Kaká eða Messi þá fer þetta að ganga. Ekki væri verra að geta keyrt á heilum mannskap en við tökum á aðstæðum hverju sinni.
Blm; Framhaldið?
Fowler, Það er bara að rífa liðið upp eftir þetta tap gegn Breiðabliki og halda áfram að klífa töfluna. En það tekur 2 - 3 ár að gera þetta lið að Íslandsmeisturum svo að menn verða bara að vera þolinmóðir.

Bríkin þakkar þessum stórefnilegum þjálfara fyrir spjallið og óskar liðinu góðs gengis í sumar.


» 28 hafa sagt sína skoðun

20.06.2010 21:25:25 / oldboysumfn

Leikur á mánudag!!

Sælir piltar,

Þá er komið að næsta leik  mánudaginn 21 júní sem er gegn Breiðablik í Fífunni og hefst hann kl 20.

ATH Melda sig hvort að menn komist eða ekki, er ekki að nenna að hringja út í menn til að tékka á stöðunni á þeim..


» 31 hafa sagt sína skoðun

13.06.2010 17:46:23 / oldboysumfn

Æfing á þriðjudag!!

Sælir, við flýtum æfingunni frá fimmtudegi til þriðjudags. 17 júní er á fimmtudaginn og fiskihlaðborð UMFN er á Miðvikudagskvöldið. Æfing kl 20 á Njarðtaksvelli. Meldið ykkur inn...

Kv Fowler (mæti)

» 39 hafa sagt sína skoðun

10.06.2010 21:51:55 / oldboysumfn

When the going get´s tough... The tough get´s going!!

Það var ekki að spyrja að úrslitum kvöldsins þegar að Landsmótsmeistarar 2009 skelltu Íslandsmeisturum 2009 granna sína úr Keflavík að velli í Reykjaneshöllinni í kvöld 7 - 4.

Við sátum vel til baka og sóttum á skyndisóknum sem þeir réðu illa við. Siggi K, G Fowler og Bjarni Sæm skoruðu allir 2 mörk og Sighvatur 1. Hefðum getað sett fleiri mörk en menn fóru illa að ráði sínu í lokin en sigurinn að engu síður öruggur. Það var ljóst að menn voru mættir tilbúnir til leiks og spiluðum við í samræmi við getu andstæðingana sem hafa verið að einoka Íslandsmótið s.l. ár. Leyfðum þeim bara að senda hann á milli sín þangað til að sóknirnar runnu út í sandinn eða við náðum að vinna boltann og bruna upp í skyndisókn. Vörnin talaði vel og menn voru skynsamir í sínum leik sem skilaði okkur þessum sigri. Ingi átti að eiga fyrsta markið en annars stóð hann sig frábærlega, varði nokkrum sinnum vel og stóð vaktina sína.

Þetta er fyrsti sigur okkar á Íslandsmótinu og núna er bara að byggja ofan á góðan leik og halda áfram að taka stig svo að við getum farið að stríða þessum liðum fyrir ofan okkur af einhverju viti.

Ég kem svo með meldingu fyrir næstu æfingu / leik....

Kv G.Fowler

» 27 hafa sagt sína skoðun

09.06.2010 00:39:03 / oldboysumfn

Stórleikur sumarsins!!

Sælir piltar,

Allir búnir að liggja yfir ruglinu frá því í síðasta leik og tími kominn á að takast á við næsta verkefni.

Þetta er án efa stórleikur sumarsins, leikur gegn grönnum okkar úr Keflavík. Ég þarf ekkert að tíunda hversu sterkir þeir eru en við spilum bara okkar bolta og höfum gaman af.

Allir að melda sig hvort þeir mæti eða ekki.

Kv Fowler

» 45 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  337  Alls: 53756
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 462 dögum
Wurth mótið í Egilshöllinni.
Könnun
Eftir afleitt gengi í sumar, á að skipta um kall í brúnni??
Nei, hann á klárlega mikið inni!
1 atkvæði

Það má skoða það ef hann skilar ekki bikar úr Wurth mótinu
2 atkvæði

Já, hann nær ekkert lengra með þennan mannskap
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 3
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Myndasöfn